Alexander Gylfason spilar á NGA Golf Pro Tour í Flórída. Mynd: Í eigu Alexanders
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 09:00
NGA: Alexander Gylfason lauk 1. degi á Southern Dunes mótinu
Í gær hófst í Haines City á Southern Dunes Golf & CC 5. mótið á NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series. Þátttakendur eru 108.
Mótið stendur dagana 27.-29. nóvember og skorið er niður eftir daginn í dag og aðeins 36 efstu og þeir sem jafnir eru í 36. sætinu fá að spila lokahringinn til fjár.
Meðal þáttakenda er Alexander Gylfason.
Alexander spilaði fyrsta hringinn á 9 yfir pari, 81 höggi; fékk 2 fugla, 10 pör, 2 skolla en því miður líka 4 skramba.
Í efsta sæti eftir 1. dag eru Bandaríkjamennirnir Philip Choi „heimamaður frá Orlando, Flórída“ og Evan Harmeling frá Massachusetts, á 6 undir pari, 66 höggum.
Golf 1 óskar Alexander góðs gengis í dag!
Til þess að sjá stöðuna í Southern Dunes SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
