
Námskeið fyrir kylfinga að hefjast í Power Jóga
Tvö ný námskeið eru að hefjast í Power Jóga hjá Sólrúnu Viðarsdóttur, jógakennara. Fullbókað er í námskeið 1 en enn eru nokkur pláss í námskeiði 2. Um að gera að hafa samband og tryggja sér pláss sem fyrst! Námskeiðin hefjast 31. janúar n.k.
Til þess að sjá allt nánar um jóganámskeiðið hjá Sólrúnu Viðarsdóttur smellið hér: POWERYOGA FYRIR KYLFINGA
Kennt er í jógstöðinni Jafnvægi, Kirkjulundi 19, Garðabæ, sjá nánari staðsetningu hér.
Skráning í síma 891-6708 eða poweryoga@poweryoga.is
Byggt er á YGF (Yoga For Golfers) kerfinu.
YFG eða jóga fyrir golfara er samsetning jógaæfinga eða æfingakerfi sem Katherin Roberts hefur þróað í samstarfi við atvinnu-kylfinga og aðra sem koma að þjálfun golfara. Það tekur mið að þörfum golfarans m.t.t golfsveiflunnar, álags og annarra þátta sem golfarinn þarf að glíma við á golfvellinum. Ávinningur golfarans við að bæta YFG inn í æfingaprógrammið er að:
• Slá lengri högg
• Bæta sveifluna
• Auka úthaldið
• Bæta einbeitingu á golfvellinum
• Lækka forgjöfina
• Hafa meira sjálfstraust á golfvellinum
• Minnka líkur á meiðslum
• Fjölga ánægðari kylfingum.
Golf er mjög krefjandi íþrótt, bæði líkamlega og andlega og því mjög mikilvægt fyrir alla golfara að hafa æfingar sem auka líkamlegan styrk, sveigjaleika, jafnvægi og einbeitingu inni í þjálfunarprógramminu sínu. Golfsveiflan leggur gríðarlegt álag á bakið. U.þ.b. 53% karla og 45% kvenna sem spila golf glíma við bakverki. Algengustu meiðsli golfarar eru í baki, öxlum og úlnliðum.
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster