Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2014 | 21:00

Nekt kylfinga

Nekt er nokkuð sem er forboðið, feimnismál, eitthvað sem ekki er gott að vera….

….. m.a. af því að maðurinn er svo ber og varnarlaus, nakinn.

Og oftar en ekki er nektin eitthvað sem er  forsenda eða undanfari kynferðislegra athafna og tengist hvorutveggja órjúfanlega í hugum flestra.

Staðreyndin er samt að nakin komum við í heiminn og förum einnig þannig án þess að geta tekið með okkur nokkuð af veraldlegum auð til að skýla okkur á bakvið.

Flestir vita t.d. líka að íþróttamenn til forna á grísku Ólympíuleikunum kepptu allir naktir, vegna þess m.a. að fólki þótti fallegt að horfa á nakta, vel þjálfaða líkama.

Listmálarar nota enn í dag naktar fyrirsætur og breytilegt hvað þótt hefir fallegt í gegnum tíðina – m.a. notaði hollenski málarinn Rembrandt  feitlagnar, naktar konur og sá fegurðina í mjúku, holdlegu  línunum í þeim (sbr. t.a.m. málverk hans af Danae, Andromedu, Diönu, Bathshebu o.fl.) – sem er alger andstæða ofangreinds fegurðarskyns Forn-Griikkjanna.

Danae eftir Rembrandt

Danae eftir Rembrandt

Golf.com hefir tekið saman myndir af nöktum eða lítt klæddum kylfingum frá ýmsum tímum og eru sumar býsna fyndnar.  Hvað var Tom Kite t.a.m. að hugsa í neðangreindri mynd? 🙂  Hér er ekki verið að gagnrýna nekt Kite öllu fremur þetta þríhyrnda viskastykki, sem hylur fjölskyldugersemarnar og líkist bleyju 🙂

Tom Kite

Tom Kite

Til þess að sjá myndirnar SMELLIÐ HÉR: