Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2012 | 16:00

Myndskeið: Yani Tseng í viðtali í bandarískum sjónvarpsþætti (hjá Charlie Rose)

Á fimmtudaginn s.l. 12. apríl 2012, þegar Bubba Watson fékk athygli flestra golffjölmiðla og annarra vestra þá var gaman að einni frétt, þ.e. þeirri að Charlie Rose (þáttastjórnandi í bandarísku sjónvarpi) hefði fengið kvenkylfing nr. 1 í heiminum, Yani Tseng frá Taíwan í viðtal til sín. Rose fannst Yani sjarmerandi og sagði að hún gæti átt framtíð fyrir sér sem „stand up“ grínisti, ef hún vildi.

Í viðtalinu kemur margt fróðlegt fram, m.a. að Yani horfði eins og allir aðrir golfáhugamenn á lokahring Masters…. en síðan það sem er frábrugðið … Hún fór að loknu áhorfinu beint út á æfingasvæði til þess að reyna að stæla 90° högg Bubba Watson.  Það fylgdi ekki sögunni hvort henni hefði tekist það en víst er að hún hefir haldið áfram að reyna þar til það tókst.

Til þess að sjá viðtal Charlie Rose við Yani smellið HÉR: