
Myndskeið: Hver er kylfingurinn: Sandra Gal?
Nú í vikunni greindi Golf1 frá því að Golf Digest hefði staðið fyrir kosningu á „heitasta kylfingnum.“ Þá kosningu vann þýska W-7 módelið Sandra Gal. Sjá hér: SANDRA GAL – VALIN HEITASTI KYLFINGUR GOLF DIGEST
Yfirleitt þegar Golf 1 stendur fyrir kynningum á kylfingum, þá eru þær í lengra lagi og í rituðu máli. Hér verður aðeins brugðið út af vananum því hér er ætlunin að sýna Hver er kylfingurinn myndskeið frá LPGA… um Söndru GAL. Smellið hér:
MYNDSKEIÐ LPGA: HVER ER KYLFINGURINN SANDRA GAL?
Í myndskeiðinu kemur m.a. fram að Sandra Gal sé frá Köln í Þýskalandi og hafi fluttst til Bandaríkjanna 19 ára til þess að stunda nám við University of Florida. Þar spilaði hún m.a. golf með Gatorsstelpunum í skólanum. Sandra er einkabarn, sem ferðaðist mikið milli golfvalla með foreldrum sínum þegar hún var yngri. Meðal helstu áhugamála hennar er að teikna og mála, vera á brettaborði og hún elskar að elska! Aðspurð hvað hún myndi gera ef hún væri ekki í golfinu sagðist hún myndu vilja vinna hjá CIA…. nei allt í gríni… hún myndi vilja vera kappakstursmaður, því að sögn Söndru keyrir hún alltof hratt og hefir komið sér í vandræði í Bandaríkjunum vegna þessa, en hámarkshraði á hraðbrautum þar er lægri en á Autoböhnunum þýsku. Helstu þýsku íþróttahetjurnar eru að hennar áliti körfuboltamaðurinn Dirk Nowitzky, Martin Kaymer og Bernhard Langer. Hún fílar Béyonce, Rihönnu og Bítlana, þegar kemur að tónlist.
Svo er hér annað skemmtilegt myndskeið með Söndru: en þar kemur m.a. fram að fyrsta golfminning hennar sé af sér á golfvelli 6-7 ára í Portúgal, þar sem henni fannst gaman að keyra um í golfbíl – helstu fyrirmyndirnar í golfinu eru Ernie Els og Fred Couples og uppáhaldsgolfvöllurinn er Oakmont í Kaliforníu. Til þess að sjá svörin við hinum 6 af 9 spurningunum sem Sandra er spurð að, smellið hér að neðan:
SANDRA GAL SVARAR 9 SPURNINGUM
Loks má hér sjá „slights-show“ með myndum af Söndru:
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023