Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2017 | 06:28

Myndskeið af handtöku Tiger

Lögreglan í Flórída hefir sent frá sér uppstöku af handtöku Tiger Woods s.l. mánudag, 29. maí 2017.

Hann fannst sofandi bakvið stýri bifreiðar sinnar og var síðan handtekinn grunaður um ölvun við akstur.

Í fréttatilkynningu sem Tiger sendi frá sér kom fram að hann hefði ekki gert sér grein fyrir sterkum áhrifum blöndu af lyfseðlisskyldum lyfjum, sem hann verður að taka sem hluta endurhæfingar vegna bakmeiðsla sinna.

Í meðfylgjandi myndskeiði sést lögreglumaður biðja Tiger um að taka 9 skref og ganga eftir hvítri, beinni línu, en eins og sjá má á Tiger býsna erfitt með það.

Það má draga í efa lögmæti þessa myndskeiðs, því hvenær þegar almennningur er handtekinn eru svona myndskeið birt? Gróft brot á friðhelgi einkalífs og ætti Tiger allan rétt á að fara í skaðabótamál vegna þessa.

Hér má sjá myndskeið Sky Sports  SMELLIÐ HÉR: