Andrea Bergsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2018 | 19:00

Munaði 4 höggum hjá Andreu

Andrea Bergsdóttir, GKG, sem búsett er í Svíþjóð,  en keppir fyrir Íslands hönd m.a. með stúlknalandsliði Íslands tók þátt í Opna breska áhugamótinu, fyrir kylfinga 18 ára og yngri.

Mótið fer fram á Ardglass vellinum, rétt sunnan við Belfast á Norður- Írlandi og er gríðarlega sterkt.

Fyrstu tvo daga mótsins var leikinn höggleikur og komust 64 í holukeppni, sem tók við í framhaldinu.

Andrea lék á samtals 17 yfir pari, 157 höggum (79 78) en það dugði ekki til – niðurskurður var miðaður við 13 yfir pari eða betra og munaði því aðeins 4 höggum að Andrea næði niðurskurði.

Sjá má stöðuna á Opna breska áhugamótinu, með því að SMELLA HÉR: 

Andrea verður í A-landsliði kvenna sem leikur á Heimsmeistaramóti áhugakylfinga á Írlandi í lok ágúst.