Golfskáli Golfklúbbs Siglufjarðar að Hóli. Að baki golfskálanum er ein 2. brautin sem er ein sérstakasta braut sem Guðmundur hefir spilað Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2012 | 10:40

GKS: Mótaskrá Golfklúbbs Siglufjarðar fyrir árið 2012

Fjögur mjög vegleg opin mót verða haldin í sumar á Hólsvelli, á Siglufirði sem vel er þess virði að keyra norður til Siglufjarðar á og ætti að setja í skipulag sumarfrísins.

Þetta eru þrjú mót í júlí nánar tiltekið 7. og 8. júlí (tilvalið að spila á báðum mótum:  Opna Olís mótið og Opna kvennamót Siglósports.)  Það er frábært að fá loks kvennamót á Siglufjörð!  Svo er Opna Vodafone mótið 29. júlí 2012.

Loks er fjórða opna mótið: Opna Bakarís- og Vífilfellsmótið, sem haldið verður um Verslunarmannahelgina, 4. ágúst 2012, sem löngum hefir verið fjölmennt og fjölsótt af Siglfirðingum um allt land!

Sjá má mótaskrá Golfklúbbs Siglufjarðar  í heild með því að smella HÉR: