Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2012 | 15:00

Minningarmót Harðar Barðdal fer fram í dag kl. 18:00 í Hraunkoti hjá Golfklúbbnum Keili !!!

Í dag 26. júní 2012, fer fram minningarpúttmót Harðar Barðdal, en þetta er þriðja árið í röð sem mótið fer fram. Mótið verður haldið  18:00 í Hraunkoti, æfingarsvæði golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í flokki fatlaðra og ófattlaðra. Einnig verða hvatningarverðlaun GSFÍ veitt við sama tækifæri en það er farandbikar í minningu Harðar Barðdal, sem veitt er þeim aðila sem hefur sýnt gott fordæmi með ástundun og framförum á æfingum GSFÍ á árinu.

Fjölmennið og takið þátt í skemmtilegu púttmóti!!!