Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2014 | 13:30

Mikko Korhonen fyrsti Finninn til að sigra á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar

Það var Mikko Korhonen sem stóð uppi sem sigurvegari í lokaúrtökumótinu, sem Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, tók þátt í og er hann fyrsti Finninn í sögu Evrópumótaraðarinnar til þess að sigra á lokamótinu.

Sjá má lokastöðuna á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina með því að SMELLA HÉR: 

Það voru eftirfarandi 27 sem hlutu kortin sín á Evrópumótaröðinni fyrir árið 2015:

1. sæti Mikko Korhonen, Finnland

2. sæti Ricardo Gonzales, Portúgal

3. sæti Renato Paratore, Ítalía

4. sæti Matt Ford, England

5. sæti Adrian Otagui, Spánn

6. sæti John Parry, England

7. sæti Eduardo de la Riva, Spánn

8. sæti Richard McEvoy, England

9. sæti Rikard Karlberg, Svíþjóð

10. sæti  Andrew Dodt, Ástralía

11. sæti Matthew Fitzpatrick, England

12. sæti Espen Kofstad, Noregur

13. sæti Paul Maddy, England

14. sæti Tom Murray, England

15. sæti Chris Lloyd, England

16. sæti Joakim Lagergren, Svíþjóð

17. sæti Anirban Lahiri, Indland

18. sæti Jason Scrivener, Ástralía

19. sæti Borja Virto, Spánn

20. sæti Pedro Oriol, Spánn

21. sæti Pelle Edberg, Svíþjóð

22. sæti Chris Paisley, England

23. sæti Andrea Pavan, Ítalía

24. sæti Lasse Jensen, Danmörk

25. sæti Alessandro Tadini, Ítalía

26. sæti Daníel Woltman, Bandaríkin

27. sæti Cyril Bouniol, Frakkland

Flestir sem hlutu kortin sín að þessu sinni voru frá Englandi eða 8 talsins.  Aðrir: Spánn 4,  Ítalía 3, Svíþjóð 3, Ástralía 2, Bandaríkin 1, Danmörk 1, Finnland 1, Frakkland 1, Indland 1, Noregur 1, Portúgal 1.

Ítalinn Paratore er sá 3. yngsti í sögu Evrópumótaraðarinnar til þess að komast gegnum lokaúrtökumótið og það með stæl en Paratore tók bronsið hafnaði í 3. sæti.

Cyril Bouniol var „heppnasti“ þátttakandinn en hann hlaut lokasætið; þurfti að fá fugl á 108. holu keppninnar …. sem tókst og hann rétt slapp.

Golf 1 mun verða með kynningu á „Nýju strákunum á Evrópumótaröðinni,“ líkt og undanfarin ár, og verður hafist við að kynna þá nýju árið 2015, í kvöld og byrjað á lukkunar pamfílnum Cyril Bouniol frá Frakklandi.