Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2020 | 23:00

Mickey Wright látin

Golfheimurinn hefir misst golfgoðsögn í dag, mánudaginn 17. febrúar 2020.

Mickey Wright, 13-faldur risamótameistari lést í dag, nýorðin 85 ára (sl. föstudag). Banamein hennar var hjartaáfall.  Hún var fædd 14. febrúar 1935.

Wright sigraði 82 sinnum á LPGA mótaröðinni og var með eina fallegustu golfsveiflu golfsögunnar.

Hún dró sig í hlé úr atvinnumennskunni 34 ára, eftir aðeins 14 ár í atvinnumennsku.

Vinsældir Wright voru slíkir að styrktaraðilar móts hótuðu að aflýsa mótum ef hún mætti ekki.

Þrýstingurin var svo mikill,“sagði Kathy Whitworth, um vin sinn og samkeppnisaðila, skv. talsmanni Frægðarhallar kylfinga, sem vinkonurnar hafa báðar hlotið inngögu inn. „Styrktaraðilarnir hótuðu að aflýsa mótunum ef hún mætti ekki. Og vitandi það, að ef þeir aflýstu gætum við hinar ekki spilað, þá spilaði Mickey alltaf.“

Mickey sigraði a.m.k. 10 sinnum á ári á LPGA, fjögur keppnistímabil í röð 1961-64 og á metið um flesta sigra á einu keppnistímabil (13).

Ég er ekki harðsnúinn samkeppnisaðili á neinn hátt,“ sagði Wright höfundinum Liz Kahn. „Það var fullkomunaráráttan sem dreif mig áfram, að gera betur en nokkur hefði áður gert það; svo einfalt var það. Ég æfði klukkustundum saman. Ég sló bolta og sló bolta og sló bolta.

Wright hlaut nngöngu í Heimsfrægðarhöll kylfinga (ens.: World Golf Hall of Fame), Frægðarhöll LPGA (ens.: LPGA Hall of Fame) og Amerísku PGA frægðarhöllina (ens.: PGA of America Hall of Fame).