Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 08:00

Michelle Wie ljóshærð

Michelle Wie er orðin ljóshærð og auðvitað þurfti hún að láta alla aðdáendur sína vita af því á Twitter.

Þar skrifaði hún: „Loksins búið! Það tók meir en 8 tíma að lita og tóna.  Takk mamma fyrir að hjálpa mér @olaplex fyrir að passa upp á hárið @guy_tang fyrir frábæra kennslu á youtube #SalonWiezy #Hairtransformation #BlondeWiezy

Auk þess birti Wie meðfylgjandi mynd af sér sem sönnun um ljósu lokkana…. sem troðfyllir alla golffréttamiðla í dag.

Sem kunnugt eiga ljóskur að skemmta sér meira.

Kannski Wie sé í þörf fyrir það? …. en hún hefir líkt og margir aðrir atvinnukylfingar verið hrjáð af meiðslum þetta árið; þurfti m.a. að draga sig úr Opna breska kvenrisamótinu …. en viðurkenndi þó líka að hún hefði ekkert verið að æfa og spila og því ekki í sem besta forminu.