Stripplingurinn í eltingarleik við öryggisgæslu Muirfield Village
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2013 | 11:30

Meira af kvenstripplingnum – Myndskeið

Í gær birtu flestir golffréttamiðlar mynd af hinni 23 ára Kimberley Webster, þar sem hún stipplaðist næstum nakin á Forsetabikarnum, mörgum til skemmtunar öðrum til pirrings.

Kimberley segist hafa stripplast fyrir (Steve) Stricker og sér til skemmtunar…..

Og uppátæki hennar hefir vakið heimsathygli og nú keppast sjónvarpsstöðvar um að fá hana í viðtöl.

Kimberley sagðist hafa velt fyrir sér hvort nú yrði litið á hana sem kynferðisbrotamann en hún hlaut aðeins 100 dollara sekt (u.þ.b. 12.000 íslenskar krónur)  fyrir ósæmilega hegðun á almannafæri. Búið er að greiða sektina.

Til þess að sjá eitt viðtala (hér NBC4 sjónvarpstöðvarinnar) við kvenstripplinginn Kimberley Webster SMELLIÐ HÉR: