Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2016 | 10:00

McGinley spældur að Lowry er ekki með í Ríó

Hópstjóri Íra og þjálfari Paul McGinley er spældur yfir ákvörðun Shane Lowry að taka ekki þátt í Ólympíuleikunum í Ríó og segir það kasta skugga á golfíþróttina (að þeir bestu skuli ekki taka þátt).

Meðal þeirra sem ekki munu taka þátt í Ríó eru Graeme McDowell, Rory McIlroy, Jason Day og Adam Scott.

Þeir eru allir fjölskyldumenn með ung börn og hræddir um að smitast af Zika vírusnum.

Nú hefir Shane Lowry bættst í hópinn og ekki nema von að McGinley sé ekki sáttur að missa 3 frábæra kylfinga úr liði sínu.

Lowry heldur samt sínu striki; hann segist ekki vilja „stefna heilbrigði fjölskyldu sinnar í hættu með því að vera í Brasilíu á þessum tíma.“

Lowry bætti við að ekki hefði verið létt verk að taka ákvörðunina og hún hefði verið uppspretta mikilla vangaveltna s.l. viku.

Lowry er nú í Ohio þar sem hann undirbýr að verja titil sinn á WGC Bridgestone Invitational, sem hefst á morgun.