Málaferli Rory við Horizon gætu kostað hann 4.8 milljarða ísl. króna
Eftir minna en 3 mánuði mun Rory McIlroy standa í vitnastúkunni í írskum rétti og bera vitni í máli sem hann höfðaði 2013 gegn fyrrum umboðsskrifstofu sinni, Horizon Sports Management.
McIlroy höfðaði mál gegn Horizon og forsvarsmanni skrifstofunnar Conor Ridge, sem og nokkra aðra aðila þar sem hann sagði saming sinn við skrifstofuna ósanngjarna, þ.á.m. telur Rory þóknunina sem skrifstofan reiknaði sér of háa sérstaklega í samanburði við vin sinn og landa Graeme McDowell.
Jafnvel þó Rory hafi skrifað undir framlengingu samningsins snemma árs 2013, þá sleit hann öllum samskiptum við skrifstofuna nokkrum mánuðum síðar og stofnaði eigin umboðsskrifstofu Rory McIlroy Inc. Horizon hefir lagt fram gagnstefnu.
Það sem hefir lekið út eru bitar af því sem virðist vera hart mál, þar sem McDowell jafnt sem faðir Rory eru dregnir inn í málið og eins eiga að hafa farið fram tilraunir til sáttaviðræðna utan réttar, sem voru árangurslausar.
Rory hefir fulla trú á málflutningi sínum og allar með málið alla leið. Það kostar hann þó. Ef allt fer á versta veg og hann tapar málinu þá hefir Daily Mail reiknað út að málið komi til með að kosta Rory £25 million, (eða u.þ.b. 4.8 milljarða íslenskra króna). Í matið er ekki tekinn kostnaðarkrafa sem bætist við en það er líklega upphæð sem Rory yrði dæmdur til að greiða Horizon og hugsanlegar skaðabætur til Horizon vegna missis á orðstý.
Málið verður tekið fyrir í febrúar, en Rory, sem er í Dubaí, er ákveðinn að láta það ekki hafa áhrif á sig.
Kannski eins gott að hann sé í 1. sæti til þess að eiga fyrir málskostnaði?
„Jamm,“ sagði Rory á blaðamannafundi í Dubaí. „Þetta er ekki það besta en þessu mun verða lokið þó nokkru áður en ég geng niður Magnolia Lane (á Masters risamótinu) í apríl. Svo lengi sem ég er klár í kollinum þegar ég fer þangað, þá er ég ánægður.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
