Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2015 | 13:00

Lydia Ko skemmti sér á Psy tónleikum í Kóreu

Lydia Ko er besti kylfingur heims, en hún er jafnframt bara táningur ennþá og stundum lætur hún eftir sér að partýast eins og einn slíkur.

Hin 18 ára Ko fór á tónleika með Psy í Kóreu, sem heimsfrægur varð 2012 fyrir smellinn sinn Gangnam Style.

Rifja má Gangnam Style upp fyrir þá sem ekki muna með því að SMELLA HÉR:

Á Instagram sagði Ko að hún hefði „sungið, öskrað, dansað og hoppað úr sér líftóruna,“ á konsertnum, sem var í 2 1/1 tíma en síðan bætti Psy við 1 1/2 tíma, þar sem allir skemmtu sér svo vel!!!

Jamms, stundum þarf bara að slappa af frá golfinu; hvort heldur er um að ræða áhugamenn eða þá sem eru fremstir af atvinnumönnunum!!!