Luke Donald varði titil sinn á Dunlop mótinu í Japan
Luke Donald, 35 ára, sigurvegari á peninglistum beggja vegna Atlantsála 2011 vann fyrsta sigur sinn á árinu nú í lok nóvember þ.e. í gær á Dunlop Phoenix mótinu.
Hann var með 2 högga forystu yfir Kim Hyung-Sun frá Suður-Kóreu fyrir lokahringinn.
Á lokahringnum náði Donald 7 fuglum og 2 skollum og krækti sér þar með í $400,000 á samtals 14 undir pari, 270 höggum.
Hann átti í lokin 6 högg á Kim, sem lauk því keppni á 8 undir pari, 276 höggum og Japaninn Shingo Katayama varð í 3. sæti á samtals 7 undir pari, 277 höggum, eftir 4 hringi á hinum 7,027 yarda langa par-71 velli Phoenix Country Club vallarins.
„Ég er mjg ánægður. Síðasti sigur minn var hér á síðasta ári á Dunlop,“ sagði Luke Donald m.a. eftir að sigurinn var í höfn. „Það er frábært að koma hingað og sigra aftur. Þetta er frábært mót með frábærum sigurvegurum og ég er mjög stoltur af því að hafa unnið 2 ár í röð.“
Luke Donald er sá fyrsti sem sigrar Dunlop mótið 2 ár í röð, en mótið er með eitt hæsta verðlaunafé á japönsku PGA mótaröðinni. Engum hefir tekist þetta frá því að Tiger Woods tókst þetta árin 2004 og 2005.
Gonzalo Fernandez-Castaño og heimamaðurinn Shunsuke Sonoda urðu jafnir í 4. sæti á samtals 280 höggum.
Sjötta sætinu deildu síðan Hideki Matsuyama, sem leiðir á japanska peningalistanum, ásamt Ástralanum Brad Kennedy og Lee Kyoung-Hoon frá Suður-Kóreu, allir á samtals 281 höggi, hver.
Þegar 2 mót eru eftir á dagskrá japanska PGA er það nýliðinn Matsuyama sem er eins og segir efstur á japanska PGA peningalistanum með 161 milljón yen (u.þ.b. 200 milljóna íslenskra króna); þar á eftir kemur Kim með 118 milljón yen og Katayama er í 3. sæti með 108 milljón yen.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
