Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2013 | 21:00

LPGA: Korda og Choi efstar á Reignwood Classic

Í dag hófst Reignwood Classic mótið í Pine Valley golfklúbbnum í Peking, Kína.

Allir helstu kvenkylfingar heims taka þátt.

Eftir 1. dag leiða tékknesk/bandaríski kylfingurinn Jessica Korda og Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu. Báðar eru þær búnar að spila á 9 undir pari, 64 höggum.

Þriðja sætinu deila þrjár: Stacy Lewis, Hee Kyung Seo og Hee Young Park, heilum 4 höggum á eftir forystunni á 5 undir pari, 68 höggum, hver.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: