Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2018 | 14:45

LPGA: Valdís Þóra T-115 e. 1. dag II. stigs úrtökumóts

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tekur þátt í II. stigs úrtökumóti fyrir LPGA mótaröðina, en úrtöku- mótið fer fram á Plantation vellinum í Flórída

Úrtökumótið fer fram á Plantation vellinum í Flórída og keppendur eru 193.

Á 1. hring úrtökumótsins lék Valdís Þóra á 4 yfir pari, 76 höggum en hún fékk  2 fugla, 3 skolla og því miður einnig þrefaldan skolla, sem eyðilagði annars ágætt skor hennar.

Eftir 1. dag er Valdís Þóra í 115. sæti.

Fylgjast má með gengi Valdísar Þóru á LPGA úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: