Stacy Lewis
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2013 | 09:45

LPGA: Stacy Lewis leiðir eftir 1. dag Honda LPGA Classic

Nú í mogun hófst á Pattaya Old Course í Síam CC, í Chonburi,  Thaílandi, Honda LPGA Classic mótið og eru allir heimsins bestu kvenkylfingar meðal þátttakenda.

Eftir 1. dag er það bandaríska stúlkan Stacy Lewis, sem hefir forystuna, spilaði á glæsilegum 9 undir pari, 63 höggum,  á hring þar sem hún fékk 1 örn, 8 fugla, 8 pör og 1 skolla.

Í 2. sæti á 6 undir pari er franski kylfingurinn Karine Icher og í 3. sæti eru 4 kylfingar á 5 undir pari: Gerina Piller frá Bandaríkjunum, Catriona Matthew frá Skotlandi, og Amy Yang og Inbee Park frá Suður-Kóreu.

Meðal þátttakenda eru nýsjálenski undraunglingurinn Lydia Ko 15 ára og hún deilir 10. sæti, spilaði á 3 undir pari, 69 höggum og Lexi Thompson, sem loksins er orðin lögleg á LPGA en hún varð 18 ára 10. febrúar s.l., spilaði á 1 undir pari 71 höggi og deilir 26. sæti.

Heimsins besta, Yani Tseng á titil að verja, en átti slaka byrjun; er á 3 yfir pari, 75. höggum og er í  54. sæti ásamt 4 öðrum kylfingum, aðeins 1 höggi á undan nýliðanum á Evróputúrnum, Cheyenne Woods, frænku Tigers, sem spilaði Pattaya völlinn á 4 yfir pari og deilir 59. sæti ásamt 5 öðrum kylfingum, þ.á.m. bleika pardusnum Paulu Creamer.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Honda LPGA Classic 2013 eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: