Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2015 | 05:00

LPGA: Sjöundi sigur Lydiu Ko

Nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga Lydia Ko sigraði í sjöunda sinn á LPGA í gær eftir bráðabana við Morgan Pressel.

Hvorki kanadísk ungstjarna (Brooke Henderson) né bandarísk Solheim Cupstjarna (Morgan Pressel) komu í veg fyrir að Lydiu Ko tækist að verja titil sinn á Swinging Skirts LPGA Classic og er þetta í 2. skipti sem Ko tekst að verja titil á LPGA.

Hún er nú sú yngsta á LPGA sem tekist hefir að verja titil á mótaröðinni tvívegis!

Hún vann sér inn $ 300.000 (u.þ.b. 41 milljón íslenskra króna), sem teljast verður ágætis 18 ára afmælisgjöf en Ko varð 18 fyrir 3 dögum síðan, 24. apríl s.l.

Og Ko vann jafnvel þó hún væri 3 höggum á eftir forystukonunni, hinni ungu Brooke Henderson frá Kanada fyrir lokahringinn, en það hefir henni einu sinni áður tekist (þ.e. að vinna upp 3 högga mun fyrir lokahring) og standa uppi sem sigurvegari í lokinn.

Ko og Pressel léku á samtals 8 undir pari, 280 höggum; Ko (67 72 71 70) og Pressel (69 72 67 72) og voru því jafnar eftir hefðbundinn 72 holu leik og því varð að koma til bráðabana milli þeirra, sem Ko sigraði á, á 2. holu bráðabanans.

Í 3. sæti varð hin kanadíska Brooke Henderson, sem svo sannarlega er búin að vekja athygli á sér á þessu móti.  Hún lék á 7 undir pari, 281 höggi (70 65 72 74), en hélt því miður ekki haus lokahringinn, þar sem hún lék á 2 yfir pari., sem er of mikið í þessari hörðu samkeppi – kannski taugarnar að standa frammi fyrir fyrsta LPGA sigri sínum? Hver veit, en Brooke Henderson á eflaust eftir að láta að sér kveða í framtíðinni!

Til þess að sjá lokastöðuna á Swinging Skirts LPGA Classic SMELLIÐ HÉR: 

Hér má sjá hápunkta í leik Ko á lokahring Swinging Skirts LPGA Classic SMELLIÐ HÉR: