Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2018 | 18:00

LPGA: Ólafía varð T-32 á Texas Classic

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir lauk keppni á VOA LPGA Texas Classic mótinu T-32, þ.e. jöfn 13 öðrum í 32. sæti.

VOA LPGA Texas Classic mótið, fór fram 5.-6. maí 2018, en var stytt í 36 holu mót vegna veðurs.

Átta högga sveifla var milli hringja hjá Ólafíu Þórunni –  Hún spilaði fyrri hring sinn á glæsilegum 5 undir pari, 66 höggum en seinni hring sinn á 3 yfir pari, 74 höggum og var því samtals á 2 undir pari.

Ólafía spilaði hringina hins vegar sleitulaust, þ.e. lauk við að spila næstum 2 hringi á einum degi öfugt við flesta aðra keppendur –  átti aðeins eftir 1 holu óspilaði eftir fyrri daginn, sem hún lauk síðan við og paraði seinni keppnisdaginn.

Þetta hefur líklega valdið því að meira álag var á Ólafíu Þórunni en öðrum, sem fengu að hvíla milli hringja. Óréttlátt þegar haft er í huga að Ólafía Þórunn var í 3. sæti eftir 1. daginn!!!

Þetta var 9. LPGA mót Ólafíu Þórunnar og það 3. sem hún kemst í gegnum niðurskurð á, á þessu keppnistímabili.

Við það fer hún úr 120. sæti stigalistans upp í 102. sætið, en hún þarf að vera meðal efstu 100 til þess að halda spilarétti sínum á LPGA.  Þetta lítur allt betur út núna – Áfram svona Ólafía!!! Glæsilegur kylfingur!!! Nú er bara að taka næsta mót!

Það var Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu, sem sigraði í Texas Classic mótinu, lék á samtals 11 undir pari (65 66).

Til þess að sjá lokastöðuna á VOA LPGA Texas Classic mótinu SMELLIÐ HÉR: