LPGA: Ólafía úr leik – Valdís T-34 og spilar um helgina!
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingar úr GR og GL léku í gær 2. hring sinn á ISPS Handa Women´s Australia Open.
Skemmst er frá því að segja að Valdis Þóra flaug í gegnum niðurskurð; átti annan glæsihring upp á par, 72 högg. Samtals er Valdís Þóra því á parinu, 144 höggum (72 72). Hún er sem stendur T-34. Seinni hringur hennar var hins vegar ansi skrautlegur- hún fékk glæsilegan örn, 5 fugla, en á móti komu einnig 3 skollar og 2 skrambar.
Ólafía Þórunn átti hins vegar afleitan hring upp á 77 högg og er úr leik – náði ekki niðurskurði, sem var miðaður við samtals 3 yfir pari eða betra. Ólafía var á samtals 7 yfir pari, 151 höggi (74 77).
Í efsta sæti í hálfleik á ISPS Handa Women´s Australia Open er Jin Young Ko frá Suður-Kóreu á samtals 10 undir pari.
Til þess að sjá stöðuna´a ISPS Handa Women´s Australia Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
