Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2018 | 22:00

LPGA: Ólafía úr leik

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er úr leik á Cambia Portland Classic.

Annað ár hennar á LPGA hefir reynst henni erfitt og erfið barátta framundan að halda sér meðal efstu 100 á stigalista LPGA þannig að hún hljóti áframhaldandi þátttökurétt á mótaröðinni.

Ólafía lék á samtals sléttu pari 144 höggum (72 72), en það dugði ekki til; aðeins munaði 1 höggi að Ólafía næði niðurskurði og það ekki í fyrsta sinn í sumar.

Margir frábærir kylfingar voru í sömu stöðu og Ólafía, m.a. liðsfélagi hennar úr Wake Forest, Cheyenne Woods, vinkona hennar Sandra Gal og kylfingarnir frábæru Morgan Pressel, sem átt hefir fast sæti í Solheim Cup liði Bandaríkjanna og Lizette Salas, svo fáeinar séu nefndar.

Til þess að sjá stöðuna á Cambia Portland Classic SMELLIÐ HÉR: