Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2018 | 18:39

LPGA: Ólafía Þórunn við keppni – Fylgist með HÉR!!!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR,  tekur þátt í Indy Women in Tech meistaramótinu, driven by Group 1001.

Mótið fer fram í Indianapolis, Indiana og gekk Ólafíu vel á þessu móti í fyrra!

Hún hefir hafið keppni og lokið við að spila 7 holur þegar þetta er ritað.

Ólafía er sem stendur á 2 undir pari, og er T-34 eins og staðan er nú…. en hún á eftir að spila 11 holur!!!

Efst eins og er, er Angel Yin, vinkona Ólafíu, en hún hefir lokið 1. hring og lék hann á 8 undir pari, 64 höggum.

Þó nokkrar eiga eftir að ljúka hringjum sínum þegar þetta er ritað og getur ofangreint því allt breyst.

Til þess að fylgjast með Ólafíu Þórunni SMELLIÐ HÉR: