LPGA: Ólafía Þórunn hefur keppni á Opna breska 12:49 – FYLGIST MEÐ HÉR!!!
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur úr GR hefur leik, við birtingu þessarar fréttar kl. 12:49 (þ.e. kl. 13:49 á mótsstað) á fyrsta keppnisdeginum á RICOH Opna breska meistaramótinu. Hún verður í ráshóp með tveimur bandarískum keppendum, Jennifer Song og Laura Diaz. Sýnt verður beint frá mótinu á Golfstöðinni og hefst útsendingin kl. 10.00.
Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar hér á skortöflu með því að SMELLA HÉR:
Ólafía þekkir vel til Diaz sem er gift einum af fyrrum þjálfurum Ólafíu Þórunnar þegar hún var við nám í bandaríska háskólanum Wake Forest. Diaz gaf þar nemendum í Wake Forest liðinu góð ráð þegar hún kom þar í heimsókn á meðan Ólafía var við nám.
Ariya Jutanugarn frá Thaílandi hefur titil að verja á þessu móti en hún er fyrsti kylfingurinn frá heimalandi sínu sem sigrar á risamóti. Hún lék hringina fjóra á Marquess’ Course í Woburn á 16 höggum undir pari samtals. Um 50.000 áhorfendur komu á mótið í fyrra og má gera ráð fyrir að sá fjöldi verði svipaður í ár og jafnvel enn fleiri.
Nánast allir bestu kylfingar heims í kvennaflokki eru á meðal keppenda. Má þar nefna;
Ariya Jutanugarn, Lydia Ko, Lexi Thompson, Michelle Wie, Stacy Lewis Paula Creamer, Inbee Park, Yani Tseng, Mo Martin, Charley Hull og Catriona Matthew.
Mótið í ár er það 42. í röðinni og er þetta í fyrsta sinn sem risamót fer fram á Kingsbarns vellinum í Skotlandi. Frá árinu 2001 hefur Kingsbarns verið einn af þremur keppnisvöllum á Dunhill mótinu á Evrópumótaröðinni. Á því móti er einnig keppt á St. Andrews og Carnoustie.
Opna breska meistaramótið fór fyrst fram í kvennaflokki árið 1976. Mótið er eitt af fimm risamótum LPGA mótaraðarinnar.
Þetta er í þriðja sinn sem íslenskur kylfingur keppir á risamóti í golfi. Ólafía Þórunn var sú fyrsta sem lék á risamóti á KPMG meistaramótinu. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni var önnur í röðinni á Opna bandaríska meistaramótinu og Ólafía leikur því í annað sinn á risamóti á Opna breska á Kingsbarns.
Sigurvegarar síðustu ára:
2016 / Woburn
Ariya Jutanugarn, Taíland, 272 högg
2015 / Turnberry
Inbee Park, Suður-Kórea 276 högg
2014 / Royal Birkdale
Mo Martin, Bandaríkin 287 högg
2013 / St Andrews
Stacy Lewis, Bandaríkin 280 högg
2012 / Hoylake
Jiyai Shin, Suður-Kórea 279 högg
2011 / Carnoustie
Yani Tseng, Taívan 272 högg
2010 / Royal Birkdale
Yani Tseng, Taívan 277 högg
2009 / Royal Lytham & St Annes
Catriona Matthew, Skotland 277 högg
2008 / Sunningdale
Jiyai Shin, Suður-Kórea 270 högg
2007 / St Andrews
Lorena Ochoa, Mexíkó 287 högg
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
