Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2017 | 10:15

LPGA: Ólafía Þórunn fer út kl. 11:02 – Fylgist með HÉR – Hápunktar 3. dags

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, hefur keppni á Opna skoska kl. 12:02 að staðartíma (sem er kl. 11:02 hér heima á Íslandi) eða eftir tæpan klukkutíma.

Ólafía Þórunn deilir sem stendur í 6. sætinu í mótinu með 2 öðrum kylfingum (Mi Hyang Lee og Georgiu Hall) og ef henni tekst að halda sér í 6. sætinu verður þetta fyrsti topp-10 árangur hennar á LPGA!

Vonandi er að henni takist að halda sér þar, því þar með fer hún úr 116. sætinu í 89. sætið á LPGA stigalistanum, sem er innan við 100 efstu og heldur þar með kortinu sínu á LPGA, takist henni að ná góðum skorum á þeim mótum sem eftir eru keppnistímabilsins.

Það er því mikið í húfi, ekki aðeins verðlaunafé, sem verður töluvert hærra, nái Ólafía Þórunn að halda sér á topp-10.

Ólafía Þórunn er eftir 3. hring á samtals sléttu pari, 216 höggum (73 70 73),  en þær sem eru efstar, eru ástralski kylfingurinn Carrie Webb og Sei Young Kim frá S-Kóreu, en báðar hafa spilað hringina 3 á samtals 6 undir pari, 210 höggum.

Nú er mikilvægt að halda sér í núinu – taka vöðvaminnið á gærdaginn – og sleppa öllum óþarfa hugsunum – Vonandi að Ólafíu Þórunni takist sem allra, allra, allra best upp í dag!!!

Sjá má hápunkta 3. dags á Opna skoska með því að SMELLA HÉR: 

Fylgjast má með Ólafíu Þórunni á lokahringnum á skortöflu með því að SMELLA HÉR: