Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2018 | 23:20

LPGA: Ólafía Þórunn á glæsilegum -4 e. 1. dag í Kanada!!!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir var nú rétt í þessu að ljúka við 1. hring á CP Women´s Open, sem er mót vikunnar á LPGA.

Ólafía lék samtals á glæsilegum 4 undir pari, 68 höggum og er sem stendur T-16!!!

Nokkrar eiga eftir að ljúka leik og því gæti sætistala Ólafíu Þórunnar enn breyst.

Á hringnum fékk Ólafía 1 örn, 3 fugla og 1 skolla.

Eins og staðan er nú eru þær Ariya Jutanugarn frá Thaílandi og Mariajo Uribe frá Kólombíu efstar og jafnar í 1. sæti, á samtals 8 undir pari, hvor.

Til þess að sjá stöðuna á CP Women´s Open SMELLIÐ HÉR: