LPGA: Ólafía Þórunn á 74 höggum e. 1. hring á Bank of Hope mótinu
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR og LPGA hóf leik í dag á 3. LPGA mótinu sínu í ár; Bank of Hope mótinu, sem fer fram í Arizona
Ólafía hóf keppni kl. 16:01 að íslenskum tíma og er beðist velvirðingar á mistökum í áður auglýstum rástíma Ólafíu Þórunnar, en í frétt Golf 1 fyrr í dag segir að rástími hennar sé kl. 23:01. Byggðust þau mistök á því að Golf 1 taldi rástíma kl. 16:01 vera gefinn upp á staðartíma en 7 klst. tímamismunur er á Arizona og Íslandi.
Ólafía Þórunn lék 1. hring í dag á 2 yfir pari, 74 höggum; fékk 3 fugla og 3 skolla og var á parinu fyrir lokaholuna, sem hún fékk því miður ólukkans skramba á og færðist við það neðarlega á skortöfluna.
Sem stendur er Ólafía T-106 en nokkrar eiga eftir að ljúka leik í dag þannig að sætistala Ólafíu getur rokkað til.
Þegar þetta er ritað er hin franska Karine Icher efst á 5 undir pari, en skor eru fremur lág í þessu móti.
Fylgjast má með stöðunni á Bank of Hope mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
