LPGA: Ólafía Þórunn á -3 á 2. hring þegar 3 holur eru eftir
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, LPGA atvinnukylfingur úr GR, er að spila á móti vikunnar á LPGA; Marathon Classic Presented by Owens Corning and 0-1
Mótið fer fram í Svannah, Ohio.
Ólafía Þórunn hefir nú lokið við að spila 15 holur á 2. hring mótsins og allt lítur vel út. Hún hefir fengið 4 fugla og 2 skolla á hringnum og er á samtals 3 undir pari, þegar 3 holur eru eftir, en fyrri dag lék hún á 1 undir pari.
Sem stendur er hún jöfn í 25. sæti og haldi hún því, er því spáð að hún fari upp um 10 sæti á stigalistanum þ.e. úr 132. sætinu sem hún er í nú í 122. sætið…. en margir keppendur eiga eftir að ljúka hringjum sínum.
Hún þarf svo sannarlega á því að halda að komast a.m.k. í gegnum niðurskurð, því þetta er 16. LPGA mót hennar á þessu keppnistímabili og hún hefir komist 4 sinnum í gegnum niðurskurð.
Hins vegar hefir í undanförnum mótum aðeins munað 1-2 höggum að hún nái niðurskurði, einkum hefir hún eyðilagt fyrir sér á lokaholum seinni hrings síns … og nú er spennandi að sjá hvort hún haldi fengnum hlut á glæsilegum hring sínum hingað til og náði niðurskurði í 5. sinn!!! …. það er vonandi að hún bæti við 1 fugli og tapi a.m.k. ekki höggi!!!
Fylgjast má með Ólafíu Þórunni og sjá má stöðuna á Marathon Classic með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
