Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2017 | 16:30

LPGA: Ólafía hefur keppni í S-Kóreu n.k. fimmtudag!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristínsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, hefur keppni nk. fimmtudag, 12. október 2017 ,á LPGA KEB HANA BANK Championship í Incheon, í S-Kóreu.

Þetta er 22. LPGA-mótið sem Ólafía Þórunn spilar í, en hún hefir 11 sinnum komist gegnum niðurskurð af þeim 21. mótum, sem hún hefir spilað í til þessa.

Sem stendur er Ólafía Þórunn í 70. sæti á peningalista LPGA, með heildarvinningsfé upp á $187,141 (u.þ.b. 20 milljónir íslenskra króna).

Ólafía Þórunn er í 182. sæti Rolex-heimslista kvenna, hærra rönkuð en nokkuð íslenskur kvenkylfingur hefir nokkru sinni verið!

Jafnframt er hún í 82. sæti á stigalista LPGA, en hún þarf að vera meðal 100 efstu á þeim lista til þess að viðhalda kortinu sínu á LPGA, þ.e. halda spilarétti sínum á LPGA fyrir keppnistímabilið 2018.

Fyrir utan þetta mót eru aðeins 5 önnur LPGA-mót á þessu keppnistímabili.

Það er því afar mikilvægt að Ólafía komi sér gegnum niðurskurð í Hana Bank meistaramótinu!

Sjá má endanlegan þátttakendahóp á LPGA KEB HANA BANK Championship, þar sem Ólafía Þórunn er talin meðal keppenda með því að SMELLA HÉR: