LPGA: Ólafía flaug g. niðurskurðinn!!! – Fékk 4 fugla á síðustu 6 holunum á 2. hring!!! – Farin út á 3. hring – Fylgist með HÉR!!!
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir hefir nú um helgina tekið þátt í Pure Silk Bahamas LPGA Classic mótinu, 1. móti ársins 2018 á LPGA.
Mótið fer að venju fram á Ocean golfvellinum í Nassau, Bahamas.
Að þessu sinni var mótið stytt í 54 holu mót vegna mikils hvassviðris og þurfti ítrekað að fresta og færa til rástíma í gær.
Í gær fór Ólafía Þórunn út á 2. hring sinn og tókst aðeins að ljúka 12 holum og leit þá ekki byrlega út fyrir henni; aðeins búin að fá 1 fugl og 5 skolla og heildarskor hennar 8 yfir pari.
Ólafía Þórunn spilaði síðustu 6 holurnar á 2. hring sínum á 4 undir pari og er því samtals á 4 yfir pari, 150 höggum (77 73). Hún gerði sér lítið fyrir og fékk 4 fugla á 6 síðustu holur 2. hrings. Glæsilegt!!!
Hún flaug því í gegnum niðurskurð og er þegar tekin til við að spila 3. hringinn þ.e. lokahringinn.
Þegar þetta er ritað kl. 17:17 að íslenskum tíma hefir Ólafía spilað 1 holu af 3. hring par-4 10. holuna á Ocean vellinum og er á parinu. Nú er bara að ná sem bestu skori!!! Í fyrra varð Ólafía Þórunn T-69 og það væri frábært ef henni tækist nú að bæta þann árangur, sem allir voru svo stoltir af þá. Sem stendur er Ólafía Þórunn T-50 í mótinu, sem er meira en frábært þegar litið er til þess að hún er að keppa á móti öllum bestu kvenkylfingum heims!!!
Enn sér Ólafíu öllum fyrir spennu og skemmtilegheitum!!!
Fylgist með gengi Ólafíu Þórunn með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
