Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR and LPGA
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 22:00

LPGA: Ólafía á 75 3. dag í Kanada

Ólafía Þórunn „okkar“Kristinsdóttir tekur þátt í CP Women´s Open, sem er mót vikunnar á LPGA og fer fram í Wascana Country Club í Regina, Saskatchewan í Kanada.

Þriðji hringurinn var sá slakasti hjá Ólafíu Þórunni til þessa í mótinu, en hún fékk 2 fugla og 5 skolla.

Ólafía hefir spilað á samtals sléttu pari, 216 höggum (68 73 75).

Hún deilir einu af neðstu sætunum af þeim sem komust í gegnum niðurskurð, með Cristie Kerr þ.e. 64. sætinu.

Til þess að sjá stöðuna á CP Women´s Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: