Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2013 | 10:00

LPGA: Natalie Gulbis efst ásamt Phatlum og Piller eftir 3. dag Titleholders

Eftir 3. dag CME Group Titleholders eru það Natalie Gulbis og þær Pornanong Phatlum frá Thaílandi og hin bandaríska Gerina Piller sem leiða.

Allar hafa þær leikið á samtals 11 undir pari, 205 höggum ; Gulbis (70 70 65); Phatlum (70 68 67) og Piller (71 67 67).

Fjórða sætinu 2 höggum á eftir deila þær: Lexi Thompson, Sandra Gal, Stacy Lewis og Shanshan Feng.

Ein í 8. sæti er Michelle Wie á samtals 8 höggum undir pari (72 70 66), þremur höggum á eftir forystukonunum.

Verður það Natalie Gulbis sem stendur uppi sem sigurvegari í kvöld? Það verður þá fyrsti sigur hennar í yfir 6 ár á LPGA – sem myndi sýna að hún er meira en bara sætur kvenkylfingur! Spennandi kvöld framundan í kvennagolfinu!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag CME Groups Titleholders SMELLIÐ HÉR: