LPGA: Mi Hyang Lee sigraði á ISPS Handa mótinu – Ko varð í 2. sæti
Það var Mi Hyang Lee frá Suður-Kóreu, sem sigraði á ISPS Handa New Zealand´s Women´s Open.
Lee lék á samtals 9 undir pari, 207 höggum (72 72 63). Það var glæsilokahringur Lee upp á 9 undir pari, 63 högg (1 örn og 7 fuglar), sem innsiglaði sigurinn. Lee hóf lokahringinn 8 höggum á eftir forystukonunni Anyu Alvarez frá Bandaríkjunum, sem deildi 3. sæti ásamt þeim Seonwoo Bae og Beth Allen, en Alvarez átti slæman lokahring upp á 1 yfir pari, 73 höggum.
Í 2. sæti varð Lydia Ko, á 8 undir pari, 208 höggum (69 69 70). Ko átti langt fuglapútt á 18. eftir til að knýja fram bráðabana, en það fór því miður fram hjá. Hún var búin að eiga við magakveisu allt mótið og varð m.a. að leggjast inn á sjúkrahús – Glæsilegt hjá henni að ná 2. sætinu!
Til þess að sjá lokastöðuna á SMElLLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
