Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2016 | 07:00

LPGA: Masson sigurvegari Manulife

Það var þýski kylfingurinn Caroline Masson, sem stóð uppi sem sigurvegari á Manulife LPGA Classic mótinu, í gær, sunnudaginn 4. september 2016!

Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Solheim Cup stjörnunni Masson með því að SMELLA HÉR:

Masson lék á samtals 16 undir pari, 272 höggum (68 69 68 67) og vann sér inn sigurtékka upp á $ 240.000,-

Hún var aðeins T-5 fyrir lokahringinn en glæsilokahringur upp á 5 undir pari, 67 högg fleytti henni í sigursætið.

Mi Hyang Lee, Minjee Lee og stalla Masson í Solheim Cup, franski kylfingurinn Karine Icher voru T-2, allar á samtals 15 undir pari, hver.

Til þess að sjá hápunkta lokahrings Manulife LPGA Classic mótsins SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá lokastöðuna á Manulife LPGA Classic mótinu SMELLIÐ HÉR: