Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2014 | 10:55

LPGA: Lexi Thompson og Meena Lee efstar á Wegmans

Í gær hófst á golfvelli Monroe Golf Club í New York, Wegmans LPGA Championship.

Efstar eftir 1. dag eru þær Lexi Thompson og Meena Lee, en báðar léku þær 1. hring á 6 undir pari, 66 höggum.

Aðeins 1. höggi á eftir í 3. sæti eru þær Jennifer Kirby frá Kanada; Lisa McCloskey frá Kólombíu og Brittany Lincicome, eins og segir á 5 undir pari 67 höggum.

Kínverski kylfingurinn Shanshan Feng og Cristie Kerr frá Flórída deila síðan 6. sætinu á 4 undir pari  og heill hópur 8 kylfinga deilir 8. sætinu á 3 undir pari þ.á.m. sænski kylfingurinn Anna Nordqvist.

Lydia Ko er sem stendur í 16. sæti (sem hún deilir með öðrum risahópi 12 kylfinga, sem allar hafa leikið á 2 undir pari, 70 höggum).

Jöfn og spennandi keppni og stefnir í frábæra golfhelgi í kvennagolfinu!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Wegmans SMELLIÐ HÉR: