Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2018 | 19:00

LPGA: Lexi ekki m/ í Opna breska

Bandaríski kylfingurinn Lexi Thompson tilkynnti á Instagram að hún hefði dregið sig úr Opna breska kvenrisamótinu eða Ricoh Women’s British Open eins og það heitir upp á engilsaxnesku.

Hún lét frá sér fara eftirfarandi yfirlýsingu á félagsmiðlum sínum (sem hér fylgir í lauslegri íslenskri þýðingu):

„Hæ allir,

Ég vildi bara láta ykkur vita að ég hefði opinberlega dregið mig úr Ricoh Women’s British Open 2018. Þetta er gífurlega erfitt fyrir mig að spila ekki í þessu virta risamóti, en ég gerði mér grein fyrir því nýlega að ég verð að taka mér tíma til að vinna í sjálfri mér. Atburðir sl. eins og hálfs árs (á og utan vallar) hafa tekið gríðarlegan toll af mér bæði andlega og tilfinningalega. Ég hef í sannleika sagt ekki fundist ég vera með sjálfri mér í nokkuð langan tíma. Ég er þess vegna að taka þennan tíma til þess að endurhlaða andlegu batteríin og einbeita mér að sjálfri mér, fjarri leiknum og atvinnugolfi. Þakka ykkur öllum fyrir áframhaldandi stuðning. Ég vonast til þess að hitta alla fljótt aftur þar sem ég ætla mér að verja titil minn á  Indy Women in Tech Championship 2018.
Lexi“

Lexi spilaði síðast í Marathon Classic presented by Owens Corning and O-I mótinu þar sem hún lauk keppni T-28. Hún hefir náð að verða meðal efstu kylfinga fimm sinnum 2018.  where she finished T38.Lexi náði að næla sér í 9. LPGA sigur sinn á Indy Women in Tech Championship, þangað sem hún snýr aftur til keppni í næsta mánuði.