Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2016 | 07:00

LPGA: Lexi efst í hálfleik á Mejers

Það er bandaríski kylfingurinn Lexi Thompson, sem er efst eftir 36 holu leik á Mejers LPGA Classic for Simply Give mótinu.

Leikið er í Gran Rapids í Michigan.

Lexi er búin að spila á samtals 10 undir pari, 132 höggum (65 67).

Fjórar eru á hæla Lexi aðeins 1 höggi á eftir, en það eru Alena Sharp frá Kanada og 3 suður-kóreanskir kylfingar: Q Baek, So Yeon Ryu og In Gee Chun allar á samtals 9 undir pari, hver.

Til þess að sjá stöðuna á Mejers LPGA Classic for Simply Give SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Mejers LPGA Classic for Simply Give SMELLIÐ HÉR: