Lydia Ko
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 10:30

LPGA: Ko hefur leik á Bahamas í dag

Hin 16 ára Lydia Ko tíar upp á morgun á Paradise Island í Bahamas, en þá hefst 1 mótið af 32 á mótaskrá LPGA fyrir keppnistímabilið 2014.

Þetta er fyrsta mótið sem Ko spilar í eftir að hún sleit samstarfi við þjálfara sinn til margra ára Guy Wilson frá Nýja-Sjálandi og skrifaði undir samning við umboðsskrifstofuna IMG og verður framvegis hjá David Leadbetter Academy í Bandaríkjunum.

Ko sigraði í aðeins 2. mótinu sem hún tók þátt í sem atvinnumaður á LPGA þ.e. í Taíwan á síðasta ári og þetta er fyrsta fulla keppnistímabil hennar á LPGA …. jafnvel þó hún snúi aftur til Nýja-Sjálands síðar í mánuðnum þar sem hún mun reyna að verja titil sinn í Clearwater, Christchurch þ.e. á ISPS Handa New Zealand´s Womens Open.

Á áhugamannsferli sínum hefði Ko nú þegar unnið sér inn $ 2 milljónir, en frá því hún gerðist atvinnumaður hefir hún unnið sér inn litlu yfir $ 200.000,- eftir að hún fékk einhvern aur fyrir að vera meðal topp-25 í frumraun sinni sem atvinnumaður á LPGA og eftir $ 181.000 sigur sinn í Taíwan.

„Við hlökkum til að hafa Lydíu sem félaga með fullan keppnisrétt á 2014 keppnistímabilinu,“ sagði Michael Whan, framkvæmdastjóri LPGA.

„Það er ekki oft sem LPGA fær nýliða sem þegar hefir sigrað ár eftir ár á LPGA Tour.“