Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2013 | 04:00

LPGA: Jee Young Lee leiðir þegar RR Donnelley Founders Cup er hálfnað

Það er Jee Young Lee frá Suður-Kóreu, sem leiðir eftir 2. hring RR Donnelley Founders Cup, sem fram fer á Wildfire golfvellinum, í Phoenix, Arizona. Lee er samtals búin að spila á 15 undir pari, 129 höggum (65 64).  Hún er fædd 2. desember 1985 og á því sama afmælisdag og m.a. Bjarki Pétursson, GB og Logi Bergmann Eiðsson.

Jee Young Lee

Jee Young Lee

Í 2. sæti er forystukona gærdagsins og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Ai Miyazato aðeins 1 höggi á eftir á samtals 14 undir pari, 130 höggum (63 67).

Í 3. sæti er svo Stacy Lewis á samtals 11 undir pari, 133 höggum (68 65).

Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru: Suzann Pettersen, Morgan Pressel, Brittany Lincicome, Carlota Ciganda og Laura Davies.

Til þess að sjá stöðuna á RR Donnelley LPGA Founders Cup þegar mótið er hálfnað SMELLIÐ HÉR: