
LPGA: Hedwall í 1. sæti eftir 3. hring
Caroline Hedwall, aðalstjarna nýaflokinnar Solheim Cup keppni er efst fyrir lokahring CN Canadian Open, sem leikinn verður í dag í Ontario, Kanada.
Hún hefir 1 höggs forystu á þær Suzann Pettersen og hina 16 ára Lydiu Ko, frá Nýja-Sjálandi, sem á titil að verja.
Caroline Hedwall er samtals búin að spila á 10 undir pari, 200 höggum (68 68 64) og það var glæsihringur hennar í gær upp á 6 undir pari, 64 högg, sem kom henni í 1. sætið.
Hedwall var taplaus í Solheim Cup, með 5 vinninga og sú fyrsta sem það tókst og það bara sunnudaginn fyrir viku. Aðrar stórstjörnur kvennagolfsins s.s. nr. 2 á Rolex-heimslistanum Stacy Lewis voru svo yfir sig þreyttar eftir Solheim Cup að þær sögðu sig úr CN Canadian Women´s Opne. …. En ekki Hedwall. Maður skyldi þó ætla að hún væri úrvinda.
Aðspurð um hvort hún væri ekki orðin þreytt svaraði Hedwall eftir 3. hring í gær: „Ég var svolítið þreytt mánudaginn fyrir viku, þriðjudag og líka miðvikudag, en þegar mótið byrjar (á fimmtudag) þá held ég bara að vikan þar áður hafi gefið mér mikið af orku og sjálfstrausti, þannig að ég finn ekki fyrir neinu.“
Fjórða sætinu deila IK Kim og Brittany Lincicome á 8 undir pari, 202 höggum, hvor og í 6. sæti eru þær Paula Creamer, Karine Icher og Gerina Piller, allt Solheim Cup liðsmenn 2013, en þær eru búnar að spila á samtals 7 undir pari, 203 höggum.
Caroline Masson, Jodi Eward Shadoff og Jessica Korda, enn aðrir liðsmenn í Solheim Cup 2013 eru ásamt fyrrvernandi W-7 módelinu Stacy Prammanasudh enn einu höggi á eftir og deila 9. sætinu
Liðsmenn bandaríska Solheim Cup liðsins Lexi Thompson og Brittany Lang deila 13. sætinu á samtals 5 undir pari, hvor og í 15. sæti kemur loks hin 17 ára Charley Hull, en því sæti deilir hún með 4 öðrum kylfingum, sem allar eru á samtals 4 undri pari, þ.á.m. nr. 1 á Rolex-heimslistanum Inbee Park og fv. nr. 1 á Rolex-heimslistanum Yani Tseng.
Til þess að sjá stöðuna fyrir lokahring CN Canadian Open SMELLIÐ HÉR:
- júní. 30. 2022 | 14:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lék á +2 á Italian Challenge Open á 1. degi
- júní. 29. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Egill Ragnar Gunnarsson – 29. júní 2022
- júní. 28. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Freyja Benediktsdóttir – 28. júní 2022
- júní. 28. 2022 | 12:00 GK: Þórdís Geirs fékk ás í Bergvíkinni!!!
- júní. 27. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: David Leadbetter – 27. júní 2022
- júní. 27. 2022 | 06:00 PGA: Schauffele sigurvegari Travelers
- júní. 26. 2022 | 23:30 Evróputúrinn: Haotong Li sigurvegari BMW International Open e. bráðabana v/Pieters
- júní. 26. 2022 | 23:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun sigraði!!!
- júní. 26. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Árni Harðarsson – 26. júní 2022
- júní. 25. 2022 | 22:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun leiðir f. lokahringinn
- júní. 25. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Li Haotong leiðir f. lokahring BMW International
- júní. 25. 2022 | 21:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Andri Þór og Guðmundur Ágúst náðu ekki niðurskurði á Blot Open de Bretagne
- júní. 25. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (26/2022)
- júní. 25. 2022 | 18:00 NGL: Aron Snær varð T-13 á UNICHEF meistaramótinu
- júní. 25. 2022 | 17:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn úr leik í Tékklandi