Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 11. 2021 | 22:00

LPGA: Hataoka sigraði á Marathon LPGA Classic

Það var Nasa Hataoka sem sigraði á móti vikunnar á LPGA Marathon LPGA Classic.

Mótið fór fram dagana 8. – 11. júlí í Sylvania, Ohio, en stytta varð mótið um 1 dag vegna rigningar.

Sigurskor Hataoku var samtals 19 undir pari, 194 högg (61 – 69 – 64).

Nasa Hataoka er fædd 13. janúar 1999 og því 22 ára. Hún hefir sigrað 6 sinnum á japanska LPGA og þetta var 4. sigur hennar á bandaríska LPGA.

Sigur Hataoku var nokkuð öruggur því hún átti heil 6 högg á næstu keppendur, hinar bandarísku Elisabeth Szokol og Minu Harigae, sem léku á samtals 13 undir pari, hvor.

Sjá má lokastöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: