LPGA: Ha Na Yang sigraði á HSBC Women´s Champions
Það var Ha Na Yang sem sigraði á HSBC Women´s Champions í morgun.
Mótið stóð 3.-6. mars 2016 og fór fram í Sentosa klúbbnum í Singapore.
Það voru stúlkur frá Asíu sem röðuðu sér í efstu 8 sætin
Ha Na spilaði á samtals 19 undir pari, 269 höggum (70 – 66 – 68 – 65) og átti heil 4 högg á þá sem næst kom.
Það var thailenska golfstjarnan Pornanong Phattlum, sem lék á samtals 15 undir pari, 273 höggum (70 – 67 – 68 – 68) og varð í 2. sæti.
Amy Yang frá Suður-Kóreu varð í 3. sæti á samtals 11 undir pari og síðan deildu 5 stúlkur 4. sætinu allar á samtals 10 undir pari hver, en það voru þær Candie Kung frá Taíwan; Ariya Jutanugarn frá Thailandi; Choi-urnar báðar frá Suður-Kóreu; Na Yeon og Chella og svo Mirim Lee, landa þeirra.
Það er ekki fyrr en í 9. sæti sem við finnum Vesturlandabúa en 9. sætinu deildu þær Suzann Pettersen, Gerina Piller, Stacy Lewis og Brooke M. Henderson.
Til þess að sjá lokastöðuna á HSBC Women´s Champions SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
