Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2020 | 08:00

LPGA: Georgia Hall sigraði á Cambia Portland mótinu

Cambia Portland Classic mótið fór fram í Portland, Oregon dagana 17.-20. september 2020 og lauk því í gær.

Það var Georgia Hall frá Englandi sem sigraði eftir bráðabana við Ashleigh Buhai, frá S-Afríku.

Báðar voru þær á 12 undir pari, 204 höggum eftir hefðbundnar 72 holur, en Hall sigraði með pari á 2. holu bráðabanans. Þetta er 2. sigur Hall á LPGA

Þriðja sætinu deildu Moriya Jutanugarn frá Thaílandi og hin bandaríska Yealimi Noh, báðar á samtals 11 undir pari, hvor.

Sjá má lokastöðuna á Cambia Portland Classic með því að SMELLA HÉR: