Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2012 | 08:00

LPGA: Futcher, Shin og Stanford deila forystunni eftir 2. dag í Singapore

Það eru 3 stúlkur hin kóreanska Jenny Shin og bandarísku stúlkurnar Angela Stanford og Katie Futcher sem leiða þegar HSBC Women´s Champion er hálfnað.  Allar eru þær búnar að spila á samtals -8 undir pari.

Fjórða sætinu deila 2 kóreanskar stúlkur: Na Yeon Choi og Hee Young Park og fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Ai Miyazato á -5 undir pari.

6 stúlkur deila síðan 7. sætinu þ.á.m hin spænska Azahara Munoz og fyrrum nr. 1 á heimslistanum Jiyai Shin, allar á -4 undir pari.

Í 13. sæti er So  Yeon Ryu, á samtals -3 undir pari, en hún er farin að verða tíður gestur ofarlega á skortöflum og síðan eru 6 kylfingar sem deila 14. sæti, þ.á.m. norska frænka okkar Suzann Pettersen, en allar eru þær á -2 undir pari.

Til þess að sjá stöðuna á HSBC Women´s Champion eftir 2. daga smellið HÉR: