LPGA: Flott byrjun hjá Ólafíu Þórunni á Bahamas T-37 e. 1. dag
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR byrjaði stórglæsilega á LPGA mótaröðinni í gær, en fyrsta mótið sem hún tekur þátt í er Pure Silk Bahamas mótið.
Ólafía lék 1. hring á 2 undir pari, 71 höggi fékk 4 fugla 12 pör og 2 skolla og er T-37 þ.e. jöfn 12 öðrum kylfingum í 37. sæti. Meðal þeirra sem léku líkt og Ólafía á 2 undir pari eru kanadíska stjarnan Brooke Henderson og Belen Mozo frá Spáni.
Ólafía var með vikonu sinni Cheyenne Woods, frænku Tigers í ráshóp og Natalie Gulbis, sem er frægari fyrir að hafa gert út á kynþokka en góða frammistöðu í golfi, en Natalie er nú í einu af neðstu sætunum af öllum þátttakendum í mótinu þ.e. 105. sæti; lék á 5 yfir pari, 78 höggum – Woods er á sléttu pari og T-71.
Niðurskurður er miðaður við 1 undir pari og dansar Cheyenne því á niðurskurðarlínunni og er undir henni sem stendur. Efst í mótinu er Solheim Cup stjarnan bandaríska frá Flórída, Brittany Lincicome, en hún lék á 9 undir pari, 64 höggum, sem er mótsmet, en hún er með 2 högga forystu á þær sem næst koma; Megan Khang frá Bandaríkjunum og P.K. Kongkraphan frá Thaílandi en þær léku báðar á 7 undir pari, 66 höggum.
Spennandi að fylgjast með Ólafíu Þórunni í dag.
Sjá má stöðuna eftir 1. dag á Pure Silk mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
