LPGA: Choi og Lee leiða – Ko komin í 3. sætið e. 3. daginn á Women´s Australia Open
Það eru suður-kóreanski kylfingurinn Chella Choi og heimakonan Minjee Lee frá Ástralíu, sem leiða eftir 2. dag ISPS Handa Women´s Australia Open.
Báðar eru þær búnar að spila á samtals 13 undir pari, 203 höggum; Choi (70 71 62) og Lee (66 67 68).
Hin 16 ára Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi hækkar sig um 1 sæti frá gærdeginum og er komin í 3. sætið, en er 2 höggum á eftir forystukonunum á 11 undir pari, 205 höggum og forystukona 1. dags, norska frænka okkar Suzann Pettersen, er nú í 4. sæti enn öðru höggi á eftir.
Forystukonan í hálfleik Caroline Hedwall hrundi niður skortöfluna eftir slælegan hring upp á 74 högg, en það skor mátti sín t.a.m. lítið á móti glæsihring Chellu Choi upp á 62 högg. Caroline er ein af 8 kylfingum, sem deila 5. sætinu á samtals 9 undir pari (4 höggum á eftir Choi og Lee og ekki öll nótt úti enn hjá henni að henni takist að vinna upp bilið, þótt erfitt verði!)
Það stefnir í gríðarspennandi lokahring á morgun hjá konunum í Ástralíu!
Til þess að sjá stöðuna fyrir lokahring (þ.e. eftir 3. dag) ISPS Handa Women´s Australia Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
