Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 11. 2016 | 07:00

LPGA: Brittany Lang sigraði á US Women´s Open

Það var hin bandaríska Brittany Lang, sem stóð uppi sem sigurvegari á Opna bandaríska risamóti kvenna (US Women´s Open) í Corde Valle.

Þetta er fyrsti risamótstitill Lang.

Hún lék á samtals 6 undir pari, 282 höggum, líkt og hin sænska Anna Nordqvist, sem hún hafði síðan betur gegn í bráðabana.

Heimsins besta, Lydia Ko, deildi síðan 3. sætinu ásamt 3 öðrum, 2 höggum á eftir þeim Lang og Nordqvist.

Sjá má hápunkta lokahrings US Women´s Open með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má lokastöðuna á US Women´s Open með því að SMELLA HÉR: