Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2012 | 07:00

LPGA: Brittany Lang sigraði á Manulife Financial LPGA Classic eftir hörku umspil!

Bandaríska stúlkan Brittany Lang sigraði á Manulife Financial LPGA Classic eftir hörku umspil við þær Ceilu Choi, Hee Kyung Seo og Inbee Park, sem allar eru frá Suður-Kóreu.  Eftir 72 spilaðar holur var allt jafnt þ.e. allar voru kylfingarnir 4 á 16 undir pari, 268 höggum. Því var  par-5 18. brautin spiluð aftur og aftur þar til úrslit fengust.  Brittany Lang varð þrisvar að fá fugl til þess að knýja fram sigur – fyrst datt Ceila Choi út með par, svo Inbee Park og Hee Kyung Seo varð sú sem fékk par í 3. sinn sem 18. holan var spiluð og þar með stóð Brittany uppi sem sigurvegari.

Brittany Lang. Mynd: LPGA

Fyrir sigurinn hlaut Brittany $195,000 sigurtékka.  Þetta er fyrsti sigur Lang á LPGA.

Til þess að sjá úrslitin á Manulife Financial LPGA Classic að öðru leyti  SMELLIÐ HÉR: